Bestu systurnar blogga
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 79429
Dagsetning
21. mars 2010
Myndasöfn
Textabox
Gaman að þú skildir líta hér við
14.10.2009 13:25:33 / birna

:)

Konur yfir fertugt - Andy Rooney
> 
> Eftir því sem ég eldist, met ég mest konur yfir fertugt og hér eru
> nokkrar
> ástæður fyrir því:
> 
> Kona yfir fertugt mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig "hvað
> ertu
> að hugsa?"
> Henni gæti ekki verið meira sama.
> 
> Ef kona yfir fertugt vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki
> yfir
> því.
> Hún gerir eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það
> áhugaverðara
> en
> leikurinn.
> 
> Konur yfir 40 eru virðulegar í framkomu. Þær fara sjaldan í
> öskurkeppni
> við
> þig í óperunni eða á fínum veitingastað.
> Nema þú eigir það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig
> ef
> þær halda að
> þær komist upp með það.
> 
> Eldri konur eru örlátar á hrós, oft óverðskuldað. Þær vita hvað
> það
> er að
> vera ekki metin að verðleikum.
> 
> Konur verða skyggnar með aldrinum. Þú þarft aldrei að viðurkenna
> misbresti
> þína fyrir þeim.
> 
> Þegar þú getur litið framhjá einni eða tveimur hrukkum er kona yfir
> 40
> langtum kynþokkafyllri en yngri kynsystur hennar.
> 
> Eldri konur eru hreinar og beinar. Þær segja þér eins og skot að þú
> sért
> asni ef þú hagar þér sem slíkur Þú þarft aldrei að fara í
> grafgötur
> með hvar
> þú hefur þær.
> 
> Já, við dásömum konur yfir fertugt af mörgum ástæðum.
> 
> Því miður er það ekki gagnkvæmt. Því fyrir hverja glæsilega,
> smarta og
> vel
> greidda konu yfir fertugt, er sköllóttur, vambmikill forngripur í gulum
> buxum gerandi sig að fífli fyrir 22gja ára gengilbeinu. Konur, ég
> biðst
> afsökunar.
> 
> Til allra þeirra karla sem segja; "Afhverju að kaupa kúna þegar þú
> getur
> fengið mjólkina frítt?" þá eru hér nýjar upplýsingar:
> 
> Nú á tímum eru 80% kvenna á móti giftingum.
> 
> Hvers vegna?
> 
> Vegna þess að konur gera sér grein fyrir að það borgar sig ekki að
> kaupa
> heilt svín þótt þær langi í smá pylsu!
>

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.06.2009 18:24:18 / birna

:)


2007

Ég á minnsta húsið í götunni,
húsið sem stendur hjá Lödunni.
Þegar granninn rennir í pottinn hjá sér
kólna allir ofnarnir hjá mér.

Eftir að granninn gerði upp garðinn hjá sér
skín ekki sólin lengur í garðinn hjá mér.
Granninn fær ráðherrana í grillið til sín
og bræluna leggur svo yfir til mín.

Granninn á jeppa af flottustu sort,
en ég á bara ljóta Lödu Sport.
Ég fer í vinnuna með rútunni,
en hann með einkaþyrlunni.

2008

Konan hans eldist ekki hætings hót,
en mín er alltaf bæði feit og ljót.
Granninn er stæltur og með hárið ljóst,
En ég er bæði með ístru og lafandi brjóst.

Þegar granninn er með veislu hjá sér,
býður hann öllum, öllum - nema mér.
Elton John skemmti lýðnum í afmælinu,
en ég hafði bara efni á Breiðbandinu.

Óþolandi er oft, vel stæði granninn minn,
Það trúa því fáir, að hann sé sonur minn.

2009

Nú er hann kominn á heimilið mitt
og fluttur í gamla herbergið sitt.
Í kreppunni hann missti allt sitt fé.
Og nú á hann minni pening en ég.

Það kviknaði í báðum jeppunum,
og konan er farin frá honum.
Nú hangir hann heima rosa down,
og bölvar og ragnar Gordon Brown.

Höfundur ókunnur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.05.2009 13:38:18 / birna

:)

Jónas 92 ára og Magga 89 ára búa á Grund og eru upp með sér að hafa ákveðið
að gifta sig Þau fara í smá gönguferð til að ræða brúðkaupið og á leiðinni
fara þau fram hjá Apóteki Austurbæjar. Jónas stingur upp á því að þau kíki
þar inn, sem þau og gera.

Jónas heilsar manninum við afgreiðsluborðið og spyr hann hvort hann sé
eigandinn. Maðurinn segir svo vera.

Jónas : Við erum að fara að gifta okkur. Selurðu nokkuð hjartalyf?
Apótekari : Að sjálfsögðu
Jónas : Hvað með blóðrásarlyf?
Apótekari : Allar tegundir
Jónas : Hægðalosandi?
Apótekari : Auðvitað
Jónas : Þarmaflóruleiðréttandi?
Apótekari : allar gerðir
Jónas : Lyf gegn minnistapi, elliglöpum og Alzheimer?
Apótekari : Mesta úrvalið í bænum!
Jónas : Hvað með vítamín, svefntöflur, tannlím og lyf sem slá á Parkinson?
Apótekari : Jú, vissulega, allt af þessu... þetta er nú apótek.
Jónas : Lyf við brjóstsviða, bakflæði, þvagleka og saurleka?
Apótekari: Jú, allt við þessu
Jónas: En hjólastóla, hækjur, stafi, göngugrindur og svoleiðis?
Apótekari : Jú, allar stærðir og kraftmestu tækin.
Jónas: Fullorðins bleyjur?
Apótekari : Jamm
Jónas: Heyrðu, þá ætlum við að vera með gjafalistann okkar hjá þér...

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2009 10:05:44 / steinunn

GLEÐILEGT SUMAR

:haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.04.2009 12:29:05 / birna

:D

Fann þessa speki hjá öðrum ;)

Fólk sem að fæddist fyrir 1990 ætti að vera dáið!!!
(eða vorum við bara heppin??)

Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn
á 5., 6., 7. og 8. áratuga síðustu aldar ekki að hafa lifað af.


HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?

-Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.

-Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við
hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.

-Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða.

-Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.

-Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu
í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika

-Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni
án þess að nokkur létist.

-Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum
á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt
bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.

-Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og
komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir
daginn.

-Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar
talstöðvar sem var flott að eiga!

-Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki
fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki
heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.

-Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.

-Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn
var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að
kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi?

-Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.

-Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli
og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg
augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og
margir gáfust upp á fyrsta njólanum!

-Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og
létum eins og heima hjá okkur.

-Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu,
eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar
aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta.

-Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur - Við
stjórnuðum okkur sjálf.

-Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk.
Hræðilegt.... En þeir lifðu af.

-Engin vissi hvað Rítalín var og engin bruddi pillur sem barn.

-Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í
Skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.

-Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.

-Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í
því...



» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2009 21:24:28 / birna

;D


          Bollur skal éta á Bolludaginn

         Baunir og saltkjöt á Sprengidaginn

         En iðrast hann má,

         maðurinn sá,

         sem át konuna sína á konudaginn.

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2009 18:45:55 / birna

Góða helgi :D


Maður nokkur náði í leigubíl í Lækjargötu fyrir skömmu. Um leið og hann stígur inn í bílinn segir dauflegur leigubílstjórinn og bregður ekki svip: "Frábær tímasetning hjá þér, þú ert bara alveg eins og hann Nonni minn.""Og hver er þessi Nonni?" spyr farþeginn og kemur sér fyrir sætinu."Hann Nonni minn?" segir leigubílstjórinn, jafn daufur sem fyrr. "Hann var einfaldlega sá sem gerði allt rétt hvað svo sem hann tók sér fyrir hendur. Rétt eins og þegar ég ek um Lækjargötu á nákvæmlega þeirri stundu sem þú þarft leigubíl, svoleiðis gerðist alltaf þegar hann Nonni minn átti í hlut.
 
"Heppnin getur nú verið hverful," segir farþeginn.
"Ekki hjá honum Nonna mínum," segir bílstjórinn, daufi. "Hann var stórkostlegur íþróttamaður. Hefði getað orðið heimsmeistari í tennis, gat leikið golf með atvinnumönnum. Hann söng eins og bestu barritónsöngvarar í frægustu óperhúsum veraldar, dansaði eins og stjörnurnar í Hollívúddmyndunum og þú hefðir átt að hlusta á hann leika á píanó. Hann var stórkostlegur náungi, hann Nonni minn."
"Já, mér heyrst að hann hafi verið sannkallaður hæfileikamaður,"
viðurkennir farþeginn.
"Bíddu bara, þú hefur ekki heyrt nema örlítið brot um hæfileika hans", segir bílstjórinn, enn án nokkurrar hrifningar í. "Nonni var með minni eins og tölva, mundi alla afmælisdaga. Hann vissi allt um vín, kunni að panta mat á glæsilegustu veitingahúsum, notaði til dæmis aldrei desertgafalinn í kjötið. Hann var ótrúlega laghentur, ekki eins og ég sem get ekki einu sinni skipt um öryggi heima hjá mér án þess að rafmagnið fari af hverfinu. Hann Nonni minn gerði allt rétt."
"Hann er ótrúlegur náungi, þessi Nonni þinn," segir farþeginn.
"Ó, já ..." samsinnir bílstjórinn. Hann rataði um alla borgina og jafnvel um Kópavog, kunni að sneiða framhjá umferðahnútum á álagstímum. Þetta hef ég aldrei getað, lendi alltaf í tímafrekum röðum á Breiðholtsbrautinni og rata ekki einu sinni út úr Kópavogi. En hann Nonni minn gerði aldrei nein mistök og hann hafði þá náðargáfu að vita hvað konur þurftu til að þeim liði sem best. Hann mótmælt aldrei konu jafnvel þó hún hefði rangt fyrir sér. Og hann klæddist alltaf óaðfinnanlega, skórnir vel burstaðir og glansandi. Nonni minn var hinn fullkomni maður. Gerði aldrei nein mistök. Enginn getur jafnast á við hann Nonna minn."
"Þetta er greinilega stórkostlegur maður," segir farþeginn áhugasamur.
"Þú hlýtur að njóta þess að þekkja svona skemmilegan mann?"
"Tja, ég kynntist honum eiginlega aldrei ... ," segir bílstjórinn, dauflegur sem fyrr, " ... en ég álpaðist til að giftast ekkjunni hans."




» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2009 16:05:25 / birna

Vondar mömmur

Nú er elsta barnið að breytast í ungling og finnst stundum ósanngjarnar reglur á heimilinu. Allir í bekknum mega vaka eins og þeir vilja og vera í tölvunni eins og þeir vilja og fleira

Fékk þennan texta sendann.... ansi góður

Var mamma þín vond ?
Mín var það!

Við áttum verstu mömmu í heiminum !
Þegar aðrir krakkar borðuðu nammi í morgunmat fengum
við hafragraut/hollt cheerios.
Þegar aðrir krakkar fengu pepsí og súkkulaði fyrir
hádegismat fengum við samlokur.
Og menn geta bara rétt ímyndað sér hvað hún gaf okkur
í kvöldmat, -allskonar MAT.
Mamma vildi alltaf vita hvar við vorum, ALLTAF, það
hefði mátt halda að við værum í fangelsi. Hún vildi
vita hverjir voru vinir okkar og hvað við vorum að gera
með þeim.
Hún krafðist þess að ef við segðumst ætla að fara
eitthvert í klukkutíma þá væri það aldrei meira en
klukkutími.
Þegar það var FRÍ í skólanum þurftum við að vinna.
Við þurftum að þvo diskana, búa um rúmin, læra að
elda, þvo þvottinn og annast önnur leiðinleg störf.
Við héldum að hún lægi vakandi á nóttunni bara til
að pæla út hvað hún ætti að láta okkur gera daginn
eftir
Hún lét okkur alltaf segja sannleikann, allann
sannleikann og ekkert nema sannleikann.
Þegar við vorum unglingar, gat hún lesið hugsanir
okkar.
Þá var lífið ERFITT !
Þegar allir fengu að fara á djammið og skemmta sér 12
eða 13 ára, fengum við ekki að gera neitt fyrr en við
vorum 16. ára.
Mömmu vegna misstum við af fjölda mörgu og miklu sem
aðrir krakkar gerðu.
hvorugt okkar hefur verið tekin fyrir að stela úr
búðum, eyðileggja fyrir öðru fólki eða verið tekin
fyrir nokkurt afbrot af neinu tagi.
ALLT henni að kenna.
Við urðum aldrei full, kunnum ekki að reykja, fengum
ekki að vera úti allar nætur og misstum því af að gera
svo fjöldamargt sem unglingar annars fá að gera.
Núna erum við flutt að heiman.
menntuð og gott fólk.
Við gerum okkar besta að vera vondir foreldrar eins og
mamma okkar var.
Ég held að það sé það sem er að í heiminum í dag.
Það er bara ekki nóg af vondum mömmum lengur.

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.02.2009 09:31:00 / birna

Yndisleg þjóð

 Þar sem ég hef legið nú í rúma viku í minni flensu hef ég horft á sjónvarp meira en góðu hófi gegnir. Það eru margir skrítnir þættir í danska sjónvarpinu og margir ekki svo skrítnir. Tek það fram að ég hef ekki séð alla.
Það er t.d. sér þáttur um hvernig á að spara peninga. Kannski ekki skritið því danir eru alveg ótrúlega sparsamir margir hverjir og tala mikið um hvað allt kostar og hvernig hægt er að fá hluti ódýrari. Í þættinum kom fram að ef þú átt þurrkara og notar hann til að þurrka þin þvott þá eyðir þurrkarinn 10% af öllu rafmagni sem notað er í húsinu. Svo öllum var bent á að nota snúruna....
Spar ljósaperur eyða mun minna en t.d. halogen perur svo farið að skipta yfir í spar perur. Auk þess eiga allir að kaupa raftæki með A merkingu því það eyðir mun minna rafmagni. En þetta vitið þið öll........

Ég fór í veislu um daginn og ætlaði að kaupa ilmvatn í gjöf til að fara með. Fór í búðina og valdi. Þegar ég fór að borga sagði afgreiðslustúlkan.
 ,,Þarftu ilmvatnið strax"?
Já, ég sagðist vera á leið i boð um kvöldið og ilmvatnið væri gjöf.
Þá sagði skvísa. ,,ÆÆ, þessi tegund fer nefnilega á tilboð á mánudaginn og þú hefðir getað komið aftur og keypt það þá og sparað xxx krónur".
Bara yndisleg vinnubrögð :D
 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2009 09:14:49 / birna

Brosið alltaf....


Lexía 1:
Maður fer í sturtu rétt í þann mund, er konan hans er að ljúka sinni og dyrabjallan hringir.

Konan vefur um sig handklæði og hleypur til dyra.

Hún opnar hurðina og úti stendur Biggi úr næsta húsi.

Áður en henni tekst að koma upp orði segir Biggi:  "Ég gef þér hundraðþúsund ef þú lætur handklæðið falla".

Hún hugsar sig um smá stund og lætur svo handklæðið falla og stendur nakin fyrir framan Bigga.  Eftir nokkrar sekúndur lætur Biggi hana fá hundraðþúsund og fer.

Konan vefur handklæðinu aftur utan um sig og fer aftur inn.

Þegar hún kemur inn á bað spyr eiginmaðurinn:  "Hver var þetta?"

"Þetta var Biggi í næsta húsi", svarar hún.

"Frábært", segir maðurinn, "nefndi hann eitthvað um þessi hundraðþúsund sem hann skuldar mér?"


Boðskapur sögunnar:

Ef þú deilir mikilvægum upplýsingum varðandi lán og áhættu með hluthöfum tímanlega geturðu verið í aðstöðu til að koma í veg fyrir óþarfa afhjúpun


Lexía 2:

Prestur bauð nunnu far.  Hún settist inn og krosslagði fætur, sem varð til að bera fót hennar.

Presturinn missti næstum stjórn á bílnum.  Eftir að hafa náð stjórninni aftur, strauk hann hendinni laumulega upp eftir fæti hennar.

Nunnan sagði þá: "Mundu eftir Orðskviðunum 10:4".

Presturinn dró að sér hendina, en þegar hann skipti um gír strauk hann hendinni aftur upp eftir fæti hennar.

Aftur segir nunnan:  "Mundu eftir Orðskviðunum 10:4".

Presturinn afsakaði sig og sagði: "Fyrirgefðu systir, holdið er veikt".

Er þau renna í hlað við klaustrið andvarpar nunnan þunglega og fer sína leið.

Þegar presturinn kemur í kirkjuna flettir hann upp Orðskviðunum 10:4.  Þar stóð:  " Snauður verður sá, er með hangandi hendi vinnur,  en auðs aflar iðin hönd".

Boðskapur sögunnar:

Ef þú ert ekki vel upplýstur í starfi þínu gætirðu misst af stórkostlegum tækifærum


Lexía 3:

Sölumaður, ritari og deildarstjóri eru á leið í mat þegar þau finna fornan olíulampa.

Þau nudda lampann og út kemur töfraandi.  Andinn segir: "Ég veiti hverju ykkar eina ósk".

"Ég fyrst!  Ég fyrst!", segir ritarinn.  "Ég vil vera á Bahamaeyjum á hraðbát algerlega áhyggjulaus".  Og púff!  Hún er horfin.

"Næst ég!  Næst ég!", segir sölumaðurinn.  "Ég vil vera á
Hawaii að slaka á með einkanuddara og endalausar birgðir af Pina Colada og ástinni minni".  Og púff! Hann er horfinn.
"Allt í lagi, það er komið að þér", segir andinn við deildarstjórann.

Deildarstjórinn segir:  "Ég vil að þessi tvö verði komin aftur á skrifstofuna eftir mat".


Boðskapur sögunnar:

Alltaf láta yfirmanninn tala fyrst.

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2009 21:38:43 / birna

:)

Það var einu sinni maður sem fór á svakalega fínt veitingahús og pantaði sér nautasteik með rauðkáli,baunum, kartöflum og sósu. Hann fær sér svolítið af öllu en eftir smá stund sér hann að ein kartaflan er skemmd.

Hann kallar á þjóninn sem er ljóska sem virtist ekki vera neitt mjög greind svo hann segir: Þessi kartafla er vond.

Þá tekur þjónninn upp kartöfluna, fer með hana aðeins frá borðunum og segir: “Vond kartafla! Vond kartafla! Vond kartafla!”. Svo gengur hún að manninum, lætur kartöfluna á diskinn og segir: “Láttu mig bara vita ef hún verður aftur til vandræða.”


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2009 14:01:45 / birna

:D

Blindur maður villist inn á kvennabar, finnur sér stól við barborðið og pantar sér glas. Þegar hann er búinn að sitja nokkra stund kallar hann á barþjóninn: "Heyrðu, á ég að segja þér ljóskubrandara?" />

Á sömu stundu dettur allt í dúnalogn á barnum, þar til konan við hlið blinda mannsins segir við hann með lágri, dimmri rödd: "Áður en þú segir þennan brandara, góði minn, þá held ég að það sé réttast af því þú ert blindur, að ég fræði þig um fáein atriði:
Barþjónninn er ljóshærð kona.
Útkastarinn er ljóshærð kona.
Ég er 1,85 á hæð, 100 kíló og er með svarta beltið í karate, og ég er ljóshærð.
Konan við hliðina á mér er ljóshærð og íslandsmeistari í lyftingum.
Konan sem situr hinum megin við þig er ljóshærð og er íslandsmeistari í vaxtarækt.
Hugsaðu þig vel um, vinur. Langar þig enn að segja þennan brandara þinn?" />

Blindi maðurinn hugsar sig um andartak, hristir svo höfuðið. "Nei, ætli það", segir blindi maðurinn, "Ekki ef ég þarf svo að útskýra hann fimm sinnum."

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2009 10:27:03 / birna

Jólin eru sko búin

Sá að systur mínar voru ekkert að taka jólaþemað út svo að .............

Allt í góðu í Álaborg og allir hressir, er nýbúin að blogga á okkar Álaborgarsíðu að ég hef bara ekki orku í þessa líka. Var bara þreytt á jólaskrautinu


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2008 11:32:23 / birna

Gleðilegt ár

Sendum öllum sem þetta lesa, nýárskveðjur og vonum að nýja árið beri í skauti sér farsæld hjá ykkur......
Kunnum ekki að spá svo þetta er bara von ;)

Kær kveðjar og knús

Bloggsystur


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.12.2008 15:57:54 / birna

Ammliskveðja

Það eru ekki allir svo heppnir að koma úr stórum systkynahópi. Það er ég. Við vorum að vísu AÐEINS 3 systur til að byrja með svo þegar við vorum farnar að geta tannburstað okkur sjálfar, stappað matinn okkar og orðnar nokkuð þægar þá bættust 2 við í hópinn ;)
Nú eru liðin heil 30 ár frá því að við þrjár stóru systurnar biðu spenntar eftir því að fá að vita hvort við fengjum systur eða bróður. 
Það var ein enn stelpan sem kom og vorum við hinar ekkert smá glaðar með litlu systur. Man ennþá að við fórum á aðfangadagskvöld í heimsókn. Vorum búnar að fara nokkrum sinnum en hún var bara svo mikil rúsina ;)
Þegar hún kom heim af spítalanum kepptumst við um að fá að halda á henni og vorum við alltaf sýna hana. Vinkonurnar komu að skoða og ég man að ein heklaði sætan smekk handa henni í skólanum. Ég byrjaði reyndar líka en ég var bara svo upptekin að halda á litlu systur að ég hafði engann tíma til að klára hann ;)
Steinunn var ótrúlega þægt barn, stundum allavega og stundaði margar íþróttir, mislengi þó. Prófaði margar og fann sig svo loksins í handboltanum. En ballet, sund, badminton, dans og eitthvað fleira minnir mig var prófað.
Já, nú er Steinunn bara orðin 30 ára, og Stefán ,,litli" sá eini af okkur á þrítugsaldri, ef við förum út í aldurinn þá er Steinunn víst eina af okkur á fertugsaldrinum hmmmm........

Elsku Steinunn systir
Til hamingju með 30 ára afmælið, hefðum svo viljað koma, en það er kreppa og svona ;)

Knús í kotið



» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 37
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 79429